Gleymdist lykilorðið ?

 


 

Sambíóin Álfabakka


Sambíóin Álfabakka var byggt árið 1982 og er eitt fullkomnasta kvikmyndahús á landinu.
Þetta var fyrsta kvikmyndahúsið á norðurlöndum sem var búið THX kerfinu. Bíóið var fyrst kvikmyndahúsa á Íslandi til að bjóða uppá frumsýningar glænýrra kvikmynda og oft voru sankallaðar evrópufrumsýningar.

Önnur kvikmyndahús á þessum tíma buðu uppá kvikmyndir sem voru orðnar tveggja ára eða eldri.  SAMbíóin Álfabakka brutu margar hefðir sem fyrir voru þegar það var opnað og má segja að með tilkomu þess hafi bíómenning íslands byrjað fyrir alvöru.
Sambíóin Álfabakkka bjóða uppá sýningar í sex sölum þar af einum lúxus VIP sal.  VIP salurinn var sá fyrsti sinnarr tegundar á Íslandi, vígður í ágúst 2001, og er b úinn þægilegur rafdrifnum sætum.

  • Salir 6
  • Sætafjöldi 948
  • Heimilisfang
  • Álfabakki 8
  • Sími 575 8900
  • fax 587 8910


Sambíóin Egilshöll


 


 

Sambíóin Kringlunni

Sambíóin Kringlunni var byggt árið 1996 og var fyrsta kvikmyndahúsið á íslandi sem byggt var inní verslunarmiðstöð, fyrirmyndin var sótt til Bandaríkjanna og Bretlands. Kvikmyndahúsið er búið 3 sýningarsölum.

Það var fyrsta kvikmyndahúsið á íslandi sem bauð uppá THX hljóðkerfi í öllum sölum. Sambíóin Kringlunni er fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi sem býður uppá DIGITAL bíósýningar og er leiðandi í þeirri tækni hér á íslandi.

Þar er einnig boðið upp á óperur í beinni útsendingu frá Metropolitan óperunni í New York.

  • Salir 3
  • Sætafjöldi 685
  • Heimilisfang Kringlunni 4-6
  • Sími 575 8900

 


 

Sambíóin Akureyri

Sambíóin á Akureyri er tveggja sala bíó sem tekur tæplega þrjú hundruð manns í sæti. Það er í hinu fornfræga húsi Nýja Bíó við Ráðhústorgið í miðbæ Akureyrar. Húsið var byggt árið 1929 og þar rekið kvikmyndahús í áratugi, því var svo breytt í vinsælan skemmtistað undir nafninu 1929. Árið 1995 stórkemmdist húsið í miklum eldsvoða og rekstri var hætt. Þremur árum seinna var bíóið opnað aftur og þá undir nafninu Nýja Bíó, árið 2000 kaupir svo SAMfélagið reksturinn og Sambíóin á Akureyri verða til.

  • Salir 2
  • Sætafjöldi  282
  • Heimilisfang Ráðhústorg 8
  • Sími 575 8900


 

Sambíóin Keflavík

Sambíóin Keflavík voru fyrsta Sambíóið, það var byggt árið 1941 af Eyjólfi Ásberg.  Sambíóin Keflavík er búið 2 sölum. Salur 1 var endurreistur árið 1998 og salur 2 var byggður árið 2001.

  • Salir 2
  • Sætafjöldi 271
  • Heimilisfang Hafnargata 33
  • Sími 575 8900

Ath: Velja þarf Reykjavík eða Álfabakki

til að sjá sýningar í Lúxus VIP